Was up??? Þetta er heimasíða saumaklúbbsins "saumavélin", en hann samanstendur af nokkrum stelpum í véla og iðnaðarverkfræði...... mars 18. mars tónleikar Guðnýjar Birnu Eldra dót |
fimmtudagur, mars 31, 2005
Sá einhver mynd af Guðnýju Birnu í sleik með Pxxxxxx í nýjasta Séð og Heyrt???? Þið getið allavega spurt hana spjörunum úr í næstu Saumavél sem hún mun halda næsta fimmtudag, þ.e. 7. apríl (eflaust síðasta Saumavél fyrir próf). Sylvía - verður þú ekki komin heim frá Kína?? Við fimm í betri helmingnum verðum að tala okkur saman um veitingar. Hlakka til ljúfur, sjáumst þá - eða fyrr. Knús knús, Guðný :D
Nielsen posted@ 3/31/2005 05:59:00 e.h.. $$$$$$$$ laugardagur, mars 26, 2005
Auglýsing, auglýsing!
Veit einhver um einhvern/einhverja sem vantar að losna við barnavagn fyrir engan eða lítinn pening? Ekki það að Fjóla sé orðin ólétt :D ... heheh. Mig vantar barnavagn til að geta leyst lokaverkefnið mitt í tölvustýrðum vélbúnaði. Kveðja Fjóla p.s. Þriðja bloggið mitt í röð á saumavélinni :p! Fjola posted@ 3/26/2005 02:22:00 e.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, mars 22, 2005
Sælar OFURskvísur!
Takk fyrir síðast, okkur tókst að sanna að við erum engar tjellingar ;), að sjáflsögðu að frátöldum þeim sem búa við það mikið karlaríki að þær fá ekki útivistarleyfi lengur en til 24:00 :p. Ég var búin að nefna við einhverjar ykkar að Eyrún hefði rétt svo heilsað mér á flugvellinum í Köben og ég hefði bara orðið pínu sár. En hvað haldið þið, Eyrún sá mig ekki, hún var bara að heilsa ferðafélaganum mínum og þá er henni formlega fyrirgefið fyrir að hafa ekki stokkið til og gefið mér faðmlag og koss :D. Ný uppgötvun Ég get ekki hamið mig í að láta ykkur vita af nýju uppgötvuninni minni. Já, ég veit hún er mjög NÖRDALEG en ég vona að þið gellurnar fyrirgefið mér einu sinni :). Ef þið opnið Matlab (sem ég tel reyndar litlar líkur á, þ.s. ég held að í okkar hópi séu fáir matlabaðdáendur) og skrifið why í run-gluggann (s.s. aðalkeyrslugluggann í Matlab) og þá gerist svolítið skemmtilegt. Þá svarar Matlab og koma misfyndnar setningar sem svar, og ég SVER það stelpur, þetta er þess virði að prófa. Nú er sko engin þörfu fyrir bækur eins og “Bókin með svörin” bara að opna Matlab og þá fæst svarið við öllum heimsins vandamálum :D. Júróvision Hvernig finnst ykkur íslenska júróvision lagið? Myndbandið féll ekki alveg í kramið hjá mér en lagið var nú allt í lagi en ég er samt vissum að við mun ekkert lenda neitt alltof ofarlega. Mér fannst alltof hratt klippt í þessu myndbandi en samt húmor þetta með að láta Selmu elta gaurinn og skjóta í hann örvar og svo enda myndbandið á að láta hana hitta. Kannski maður prófi þetta næst þegar maður verður ástfanginn ... hehehe. Páskar Jæja, ætla að láta þetta nægja í bili, ég óska ykkur gleðilegra páska og vona að þið borðið nóg af súkkulaði um helgina. Spurning hvort einhver verið svo góð/ur í sér að gefa mér páskaegg ... ég þigg alveg eitt stórt ... ummmmmm :D. Bið að heilsa ykkur í bili Fjóla fagra ;) Fjola posted@ 3/22/2005 07:51:00 f.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, mars 08, 2005
Sælar skvísur!
Nú fer hver að verða síðastur til að kyssa mig bless áður en ég fer til lands kæruleysis :D. Ég er búin að fara eina ferð í Bónus og kaupa nammi handa henni Eyju minni, aldrei að vita að maður skelli sér aftur :p. En aðaltilgangurinn með þessu bloggi mínu var að láta ykkur vita af því að það sé saumaklúbbur hjá Grétu miðvikudaginn 16. mars. Allir að mæta voða hressar og MUNDIÐ ENGAN KELLINGASKAB ;). Love Fjóla Fjola posted@ 3/08/2005 10:14:00 f.h.. $$$$$$$$ mánudagur, mars 07, 2005
Nýtt tungumál hmm ahyglisvert:
http://www.norden.is/tolumsaman.htm Sigrun Lilja posted@ 3/07/2005 01:10:00 e.h.. $$$$$$$$ þriðjudagur, mars 01, 2005
1. mars og söfnunin okkar er hafin jei jei jei jei jei
Sigrun Lilja posted@ 3/01/2005 03:55:00 e.h.. $$$$$$$$ |
Tenglar
Annað |